HumanAtWork styður stjórnendur og mannauðsfólk við að takast á við áskoranir í vinnuumhverfinu og byggja upp menningu sem styður traust, helgun í starfi og árangur.
HumanAtWork var stofnað með það að markmiði að styðja vinnustaði við að byggja upp heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem skýr samskipti, traust og fagleg stjórnun styðja við árangur og helgun í starfi.
Að baki fyrirtækinu stendur Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur með um tuttugu ára reynslu af vinnu með stjórnendum, mannauðsfólki og vinnustöðum.
Gildi HumanAtWork
Fagleg festa – Við byggjum á reynslu, rannsóknum og gögnum.
Mannleg nálgun – Við mætum fólki af virðingu.
Skýr og ákveðin – Við segjum það sem þarf að segja.
Eftirfylgni og framkvæmd – Við fylgjum verkefnum eftir og aðstoðum við framkvæmd

Hildur Jóna Bergþórsdóttir, Sálfræðingur, Ráðgjafi og Eigandi
Hildur er löggiltur sálfræðingur með Cand.Psych. gráðu frá Háskólanum í Árósum og BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur áralanga reynslu af mannauðsmálum og vinnusálfræði. Hildur starfaði í átta ár hjá Gallup þar sem hún sérhæfði sig í fyrirtækja- og starfsmannarannsóknum og síðar í mannauðsstjórnun hjá Landsvirkjun og Icelandair. Hún er alþjóðlegur Gallup styrkleikamarkþjálfi og hefur haldið fjölda námskeiða og vinnustofa um EKKO málaflokkinn, leiðtogafærni, samskipti, traust og styrkleika í starfi.
Hildur situr í stjórn Evrópska vinnusálfræðifélagsins (EAWOP) og er formaður fagdeildar vinnusálfræði í Sálfræðingafélagi Íslands. Hún starfar samkvæmt siðareglum Sálfræðinga og hefur lokið fjölmörgum námskeiðum í leiðtogafærni og faglegri úttekt á vinnustaðatengdum málum.
hildur@humanatwork.is / S: 840 0884
Próf og skírteini
2003 – B.Sc. í sálfræði frá Háskóla Íslands
2006 – Cand.Psych í sálfræði frá Árósarháskóla
2007 – Löggiltur sálfræðingur á Íslandi
2020 – Leiðtogafærni (Dale Carnegie)
2021 – Alþjóðlegur Gallup styrkleikamarkþjálfi
2023 – Grunnnámskeið í faglegri úttekt á EKKO málum
Önnur námskeið í EKKO málum
2025 – An organizational level perspective on preventing and managing workplace bullying and harssment: the role of ethical infrastructure. G-WOP ráðstefna.
2024 – Breytingar á lögum og reglum í UK varðandi kynferðislega áreitni. CIPD námskeið um kynferðislega áreitni.
2024 – Engaging leadership: Cultivating Employee Strengths and Psychological Safety in Organizations – 3 daga vinnustofa EAWOP í Valencia á Spáni.
2023 – Investigating complaints of bullying and harassment in the workplace. Heilsdags vinnustofa á EAWOP Póllandi.
2020 – Einelti á vinnustöðum. Þróaði rafrænt fræðsluefni um einelti á vinnustöðum árið 2020 í samvinnu við ytri þjónustuaðila sem er aðgengilegt öllum á YouTube. Minningarsjóður Brynju Bragadóttur – YouTube
2019 – Meetoo og lögin, námskeið. Kjartan Bjarni Björgvinsson.
2017 – Bullying and harassment at work. NIVA námskeið um einelti og áreitni í vinnunni í Kaupmannahöfn.
2015 – Harassment and mistreatment in organizations. EAWOP ráðstefna í Noregi. Morten Birkeland Nielsen.
2011 – Bullying and harassment at work. NIVA námskeið um einelti og áreitni í vinnunni í Reykjavík.


