vinnustaðir – heildstæð nálgun humanatwork
Árangur eykst þegar fólki líður vel, hefur skýr markmið, á góð samskipti og hefur tækifæri til að nýta styrkleika sína í vinnunni.
HumanAtWork vinnur með fyrirtækjum og stofnunum að því að efla vinnustaðamenningu, bæta samskipti, draga úr sálfélagslegri áhættu og skapa aðstæður þar sem starfsfólk getur notið sín. Lausnir okkar byggja á rannsóknum, mælingum og hagnýtum aðgerðum sem skila raunverulegum breytingum.
Við bjóðum vinnustöðum upp á samstarfssamninga sem tryggja forgang að sérfræðiþjónustu þegar þörf krefur. Með slíkum samningi fær mannauðsfólk, stjórnendur og starfsfólk greiðan aðgang að sálfræðiþjónustu, handleiðslu og ráðgjöf auk stuðnings við áskoranir sem geta komið upp á vinnustað, svo sem streitu, samskiptavanda, erfið starfsmannamál eða mál sem tengjast einelti, kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi (EKKO).
Markmiðið er að styðja vinnustaði við að bregðast snemma við, efla forvarnir og hafa faglegan stuðning til staðar þegar á reynir.
mannauðsfólk
Mannauðsfólk stendur frammi fyrir fjölbreyttum áskorunum og þarf oft að taka erfiðar ákvarðanir þar sem bæði þarf að huag að fólki og rekstri.
Við erum samstarfsaðili mannauðsfólks og bjóðum upp á faglega ráðgjöf, handleiðslu, fræðslu og stuðning í málum sem tengjast vinnuumhverfi, stjórnun, breytingum, EKKO, kulnun og starfsþróun. Markmiðið er að styrkja mannauðsstarfið með viðurkenndum aðferðum og lausnum sem auðvelt er að innleiða.
Stjórnendur
Stjórnendur hafa lykilhlutverk í því að skapa vinnuumhverfi þar sem fólk getur náð árangri og liðið vel.
Við styðjum stjórnendur með einstaklingsráðgjöf, handleiðslu, fræðslu og verkfærum sem auðvelda þeim að takast á við krefjandi samskipti, breytingar, álag og leiðtogahlutverkið. Með aukinni færni og sjálfstrausti geta stjórnendur byggt upp sterkari teymi og heilbrigðari vinnustaðamenningu.
Starfsfólk
Vellíðan starfsfólks er grunnurinn að góðum vinnustað.
Við bjóðum upp á sálfræðiráðgjöf, fræðslu og námskeið sem styðja starfsfólk við að efla samskipti, takast á við streitu og álag, nýta styrkleika sína og stuðla að heilbrigðu samstarfi. Þegar starfsfólk hefur réttu verkfærin eykst bæði starfsánægja og árangur.
Áhugaverðir tenglar / Viðburðir

Okkur finnst mikilvægt að mannauðsfólk og stjórnendur viðhaldi þekkingu sinni og fái góða endurmenntun. Ef þú smellir á tengilinn hér að neðan þá getur þú bæði séð áhugaverðar heimasíður og tengingu á áhugaverða viðburði sem HumanAtWork mælir með að skoða nánar.
