HumanAtWork var stofnað með það að markmiði að styðja vinnustaði við að byggja upp heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem skýr samskipti, traust og fagleg stjórnun styðja við árangur og helgun í starfi.

Að baki fyrirtækinu stendur Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur með um tuttugu ára reynslu af vinnu með stjórnendum, mannauðsfólki og vinnustöðum.



Hildur Jóna Bergþórsdóttir – Morgunblaðið/Árni Sæberg

Hildur Jóna Bergþórsdóttir

Hildur er löggiltur sálfræðingur með Cand.Psych. gráðu frá Háskólanum í Árósum og BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur áralanga reynslu af mannauðsmálum og vinnusálfræði. Hildur starfaði í átta ár hjá Gallup þar sem hún sérhæfði sig í fyrirtækja- og starfsmannarannsóknum og síðar í mannauðsstjórnun hjá Landsvirkjun og Icelandair. Hún er alþjóðlegur Gallup styrkleikamarkþjálfi og Workdesigner. Hildur hefur einnig sérhæft sig í EKKO málaflokknum.

Hildur starfar sem sérfróður meðdómari hjá dómstólasýslunni, situr í stjórn Evrópska vinnusálfræðifélagsins (EAWOP) og er formaður fagdeildar vinnusálfræði í Sálfræðingafélagi Íslands. Hún starfar samkvæmt siðareglum Sálfræðinga og hefur lokið fjölmörgum námskeiðum í leiðtogafærni og faglegri úttekt á vinnustaðatengdum málum.

hildur@humanatwork.is / S: 8400884


Próf og skírteini

2003 – B.Sc. í sálfræði frá Háskóla Íslands

2006 – Cand.Psych í sálfræði frá Árósarháskóla

2007 – Löggiltur sálfræðingur á Íslandi

2020 – Leiðtogafærni (Dale Carnegie)

2021 – Alþjóðlegur Gallup styrkleikamarkþjálfi

2023 – Grunnnámskeið í faglegri úttekt á EKKO málum

2026 – Starfshönnun (e. Workdesign) – JD-R


Önnur námskeið í EKKO málum


YouTube rás HumanAtWork

Á YouTube rás HumanAtWork má finna ýmsan fróðleik varðandi vellíðan og árangur í vinnu.