fáðu faglega ráðgjöf Þegar samskipti, líðan eða starfsmannamál verða flókin

Þjónusta Humanatwork

Árangursríkir vinnustaðir byggja á skýrum samskiptum, góðri samvinnu, heilbrigðu vinnuumhverfi og faglegri stjórnun. Þegar þessir þættir eru í jafnvægi eykst traust, helgun í starfi og árangur. Þegar það er ójafnvægi getur það leitt til streitu, samskiptavanda og óöryggis í starfi.

HumanAtWork styður stjórnendur, mannauðsfólk og teymi við að takast á við þessar áskoranir á faglegan og markvissan hátt. Þjónustan byggir á gagnreyndri þekkingu úr vinnusálfræði og áratuga reynslu af því að vinna með vinnustöðum að því að styrkja menningu, samskipti og stjórnun.

Boðið er upp á ráðgjöf, fræðslu og stuðning sem hjálpar vinnustöðum að bregðast við áskorunum og byggja upp vinnuumhverfi sem styður bæði árangur og helgun í starfi.

Samskipti eru einn mikilvægasti þáttur vinnustaðamenningar.

Skýr og fagleg samskipti draga úr misskilningi, ágreiningi og streitu í starfi.

HumanAtWork styður stjórnendur og teymi við að efla samskiptahæfni, takast á við erfið samtöl og skapa vinnuumhverfi þar sem rætt er um áskoranir áður en þær þróast í stærri vandamál.

Í þjónustunni felst meðal annars:

Vinna með samskiptavanda og ágreining innan teyma

Ráðgjöf til stjórnenda í krefjandi samskiptamálum

Fræðsla um uppbyggileg samskipti og endurgjöf

Stuðningi við erfið starfsmannasamtöl

Markmiðið er að styrkja stjórnendur í að taka samtöl sem skipta máli – á skýran, faglegan og mannlegan hátt.

Góð samvinna er lykill að árangri og helgun í starfi. Þegar traust og skýr ábyrgð er til staðar geta teymi unnið markvisst að sameiginlegum markmiðum. Þegar samvinna minnkar getur það hins vegar leitt til togstreitu, óskýrra væntinga og aukins álags.

HumanAtWork vinnur með stjórnendum og teymum að því að byggja upp heilbrigða menningu í teymum þar sem styrkleikar fólks nýtast og samvinna styður árangur og eykur traust.

Í þjónustunni felst meðal annars:

Vinnustofur um traust og teymisvinnu

Þróun menningar og samstarf í teymum

Styrkleikamiðuð vinna með teymum

Ráðgjöf til stjórnenda um árangursrík teymi

Markmiðið er að skapa vinnuumhverfi þar sem samvinna byggir á trausti, ábyrgð og skýrum samskiptum.

Álag og streita eru meðal stærstu áskorana vinnustaða í dag. Ef ekki er brugðist við í tíma getur langvarandi streita haft áhrif á heilsu starfsfólks, samstarf og frammistöðu og dregið úr helgun í starfi.

HumanAtWork styður vinnustaði við að greina orsakir streitu og þróa leiðir til að draga úr óheilbrigðu álagi í vinnuumhverfi.

Við leitumst við að stuðla að forvörnum og grípa inní áður en ástandið verður óviðráðanlegt ásamt því að stuðla að endurkomu til starfa.

Við notum viðurkennda aðferðafræði byggða á JD-R kenningunni (e. Job Demands – Resources) og aðferðafræði sem kallast e. Workdesign.

Í þjónustunni felst meðal annars:

Fræðslu um streitu og álag í starfi

Ráðgjöf til stjórnenda um stjórnun álags

Stuðningur við starfsfólk og stjórnendur sem upplifa mikið álag með markmið að finna leiðir til að draga úr neikvæðum áhrifum af vinnuálagi og auka helgun

Greining á áhættuþáttum í vinnuumhverfinu sem geta aukið streitu og dregið úr helgun starfsfólks

Markmiðið er að styðja vinnustaði í að skapa vinnuumhverfi sem styður bæði árangur og helgun í starfi.

Í starfsmannamálum koma oft upp aðstæður þar sem mikilvægt er að fá faglega sálfræðilega ráðgjöf.

HumanAtWork veitir sálfræðilega ráðgjöf tengda vinnuumhverfi, samskiptum og starfsmannamálum, bæði til stjórnenda og einstaklinga.

Í þjónustunni felst meðal annars:

Ráðgjöf til stjórnenda í krefjandi starfsmannamálum

Stuðningur við starfsfólk í krefjandi aðstæðum í vinnu og einkalífi

Faglegt mat á aðstæðum í vinnunni

Ráðgjöf í tengslum við einelti, áreitni og samskiptavanda

Áhersla er lögð á faglega nálgun, trúnað og skýrar leiðir til lausna.

Vinnustaðir bera ábyrgð á að meta og bregðast við sálfélagslegri áhættu í vinnuumhverfi, svo sem álagi, samskiptavanda, einelti og áreitni samkvæmt lögum um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum.

HumanAtWork aðstoðar vinnustaði við að framkvæma sálfélagslegt áhættumat og nýta niðurstöður þess til að bæta vinnuumhverfi og styrkja vinnustaðamenningu. Við notum viðurkennda aðferðafræði byggða á Evidence Based HR.

Í þjónustunni felst meðal annars:

Framkvæmd sálfélagslegs áhættumats

Greining niðurstaðna og ráðgjöf til stjórnenda

Þróun aðgerðaáætlana

Fræðsla fyrir stjórnendur og starfsfólk

Markmiðið er að hjálpa vinnustöðum að bregðast við áhættu snemma og byggja upp vinnuumhverfi sem styður heilbrigða menningu, árangur og helgun í starfi.

Stjórnendur hafa lykilhlutverk í að móta vinnustaðamenningu og skapa aðstæður þar sem starfsfólki líður vel og nær árangri í starfi.

HumanAtWork styður stjórnendur og mannauðsfólk í að takast á við flókin mannauðsmál með faglegum og skipulögðum hætti.

Í þjónustunni felst meðal annars:

Ráðgjöf í krefjandi starfsmannamálum

Stuðningur við meðferð EKKO mála (einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi)

Fræðslu fyrir stjórnendur um ábyrgð og hlutverk þeirra

Þróun verkfæra og verklags fyrir mannauð og stjórnendur

Áhersla er lögð á faglega eftirfylgni og skýrar lausnir sem styðja bæði stjórnendur og starfsfólk.


Okkur finnst mikilvægt að mannauðsfólk og stjórnendur viðhaldi þekkingu sinni og fái góða endurmenntun. Ef þú smellir á tengilinn hér að neðan þá getur þú bæði séð áhugaverðar heimasíður og tengingu á áhugaverða viðburði sem HumanAtWork mælir með að skoða nánar.

Smelltu hér til að skoða nánar