fyrir mannauðsfólk, stjórnendur og starfsfólk

Handleiðsla / Sálfræðiþjónusta
Við krefjandi aðstæður er mikilvægt að fá utanaðkomandi aðstoð, einhvern til að ræða málin við í trúnaði, kanna valkosti og ákveða næstu skref. Handleiðsla er fyrst og fremst ætluð fólki sem vill þróa sig í starfi og auka skilning á eigin vinnu og samskiptum. Fá aðstoð með flókin og krefjandi mál. Við bjóðum einnig uppá hóphandleiðslu þegar teymi þurfa stuðning til að vinna úr málum, eins og t.d. sorg eða breytingum. Sálfræðiþjónusta miðar að því að bæta andlega líðan einstaklinga, vinna með tilfinningaleg eða hegðunarleg vandamál og styðja einstakling við að ná jafnvægi í lífi og starfi.

Mannauðsmál / Stjórnun
Við búum yfir áratuga reynslu innan mannauðsmála og getum aðstoðað vinnustaði með ýmiskonar mannauðsmál. Hvort sem það er þróun og uppfærsla á mannauðsferlum, stefnum og verklagsreglum, greining á starfsanda í teymum, eftirfylgni með starfsmannakönnunum, úrvinnsla á krefjandi starfsmannamálum eða nnað sem hefur áhrif á líðan starfsfólks og árangur. Við greinum raunverulegar þarfir, hönnum ferla og verklagsreglur og styðjum við innleiðingu.

Vinnustofur / Fyrirlestrar
Við bjóðum uppá áhrifaríkar og hagnýtar vinnustofur fyrir starfsfólk, stjórnendur og mannauðsfólk ásamt fyrirlestrum og örerindi til að efla samskipti, stjórnun og samvinnu á vinnustaðnum. Við sérsníðum allt að ykkar þörfum. Hægt er að fá m.a. erindi varðandi samskipti, líðan, umbætur, fjarvinnu, ágreining, framúrskarandi teymi, einelti, áreitni og ofbeldi, sorg og breytingar.

Áhugaverðir tenglar / Viðburðir
Okkur finnst mikilvægt að mannauðsfólk og stjórnendur viðhaldi þekkingu sinni og fái góða endurmenntun. Ef þú smellir á tengilinn hér að neðan þá getur þú bæði séð áhugaverðar heimasíður og tengingu á áhugaverða viðburði sem HumanAtWork mælir með að skoða nánar.

