fáðu faglega ráðgjöf Þegar samskipti, líðan eða starfsmannamál verða flókin

Styrkleikaþjálfun með Gallup Strengths Finder

Eru ný teymi eða breytingar í gangi sem kalla á aukið traust og samheldni? Væri gagnlegt fyrir ykkur að efla tengsl og samskipti innan teymisins með skemmtilegri og hvetjandi vinnustofu? Hvort sem þú vilt efla leiðtogastíl, byggja traust í nýju teymi eða auka sjálfstraust starfsfólks – þá er styrkleikaþjálfunin öflug leið til að fá fólk til að vinna betur saman. 

Hvað gerum við? HumanAtWork hjálpar einstaklingum og teymum að greina og virkja styrkleika sína með Gallup Strengths Finder. Auka sjálfsþekkingu, styrkja tengsl og skapa jákvæðari vinnumenningu.

Fyrir hverja? Teymi sem vilja styrkja tengsl sín á milli og efla samstarf. Nýir hópar sem vilja byggja traust og sameiginlega sýn. Leiðtoga sem vilja þekkja sinn einstaka leiðtogastíl. Einstaklinga sem vilja auka sjálfsþekkingu og sjálfstraust.

Námskeiðið byggir á Gallup Strengths Finder sem er viðurkennd aðferðafræði og hjálpar fólki að greina náttúrulega hæfni sína og nýta meðvitað í lífi og starfi.

Á námskeiðinu hjálpum við fólki að tala saman af hreinskilni og virðingu og koma auga á styrkleika sína og annarra í teyminu. Við höfum öll styrkleika en þurfum stundum aðstoð við að koma auga á þá.

Kennari: Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur og viðurkenndur alþjóðlegur styrkleikamarkþjálfi frá Gallup.