
flókin og krefjandi starfsmannamál
Byggir á lögum, reglugerð og faktaundersökelse aðferðafræðinni
Fyrir stjórnendur og mannauðsfólk
Markmið að þekkja áhættur, lög, reglugerð, hlutverk og ábyrgð
Námskeiðið er 3 klst.
AÐ TAKA Á ERFIÐUM MÁLUM
Námskeið fyrir stjórnendur og mannauðsfólk í að taka á erfiðum starfsmannamálum
Hefur þú þurft að taka á erfiðu starfsmannamáli? Hafa komið upp samskiptaerfiðleikar í teyminu hjá þér sem þú ert óviss um hvernig er best að leysa, eða hvort þú þurfir yfirhöfuð að gera eitthvað í því? Viltu vera klár í málið þegar það mun koma upp?
Hvað gerum við? HumanAtWork býður sérsniðna fræðslu fyrir stjórnendur og mannauðsfólk um hvernig ber að bregðast við erfiðum málum.
Námskeiðið byggir á lögum um hollustuhætti á vinnustöðum, reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum og aðferðafræði sem kallast Faktaundersökelse.
Á námskeiðinu er m.a. farið yfir hvað segja lögin okkur, hvar liggja mörkin, hvernig er best að bregðast við þegar upp koma mál, hverjir eru helstu áhættuþættirnir sem við þurfum að þekkja og hvert er hlutverk stjórnanda/mannauðsfólks, hvenær ætti stjórnandinn/mannauður að leita sér aðstoðar og hvernig er best að halda utan um erfið samskipti á vinnustaðnum.
Kennari: Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur

