fáðu faglega ráðgjöf Þegar samskipti, líðan eða starfsmannamál verða flókin

Mannauðsmál


1:1 Samtal

Handleiðsla

Við krefjandi aðstæður er mikilvægt að fá utanaðkomandi aðstoð, einhvern til að ræða málin við í trúnaði, kanna valkosti og ákveða næstu skref. Handleiðsla er fyrst og fremst ætluð mannauðsfólki og stjórnendum sem vilja þróa sig í starfi og auka skilning á eigin vinnu og samskiptum eða fá aðstoð með flókin og krefjandi mál.

Hér er hægt er að bóka tíma í handleiðslu

Greiningar og lausnavinna

Við styðjum stjórnendur og mannauðsfólk þegar áskoranir koma upp í teymum eða vinnuumhverfi. Með markvissri greiningu, samtölum við hagsmunaaðila og evidence-based HR aðferðafræði að leiðarljósi hjálpum við til við að skilja hvað liggur að baki (hvert er vandamálið), greina úrbótatækifæri (hvað þarf að laga) og móta raunhæfar lausnir sem hafa áhrif á árangur og vinnumenningu til framtíðar.

Ágreiningur

Ágreiningur, óánægja og kvartanir eru eðlilegur hluti þess að vinna og lifa í samfélagi með öðrum. Fáir fara í gegnum starfsævina án þess að lenda einhvern tímann í ágreiningi. Þegar slík mál koma upp er mikilvægt að bregðast við af fagmennsku og í tíma, það eykur líkur á lærdómi, betri samskiptum og sterkari vinnustaðamenningu. Við aðstoðum mannauðsfólk, stjórnendur og starfsfólk við að koma slíkum málum í réttan farveg.

Breytingastjórnun

Jafnvel góðar og nauðsynlegar breytingar geta valdið óöryggi, mótstöðu eða misskilningi ef ekki er hugað að því hvernig þær eru kynntar, útskýrðar og innleiddar í daglegt starf.Við hjá HumanAtWork aðstoðum stjórnendur og mannauðsfólk við að stýra breytingum af nærgætni og fagmennsku þar sem starfsfólk fær tækifæri til að skilja, taka þátt og aðlagast nýjum veruleika.Við notum bæði eigindlegar og megindlegar aðferðir til að greina viðhorf, upplifun og menningu í kringum breytingar og hjálpum stjórnendum og mannauðsfólki að taka upplýstar og mannlegar ákvarðanir.

Starfsmannakannanir

Á mörgum vinnustöðum eru gerðar reglulegar starfsmannakannanir og oft þurfa vinnustaðir aðstoð með að hanna spurningarlista sem mæla það sem þarf að mæla, aðstoð við næstu skref að lokinni könnun og hjálp við innleiðingu á umbótum. Við aðstoðum ykkur að hanna spurningarnar, vinna með niðurstöður, skilja hvað liggur að baki og koma með tillögur að næstu skrefum til þess að gera vinnuumhverfið enn betra og auka helgun starfsfólks. Við leggjum sérstaka áherslu að greina hvað er mögulegur vandi á hverjum stað fyrir sig og koma með tillögur að lausnum.

Mannauðsstefna

Viltu aðstoð við þróun og uppfærslu á mannauðsferlum, stefnum og verklagsreglum? Við aðstoðum vinnustaði við að móta skýra og framkvæmanlega mannauðsstefnu sem styður við velferð starfsfólks og menningu vinnustaðarins. Við greinum raunverulegar þarfir, hönnum ferla og verklagsreglur og styðjum við innleiðingu. 

Áhugaverðir tenglar / Viðburðir

Okkur finnst mikilvægt að mannauðsfólk og stjórnendur viðhaldi þekkingu sinni og fái góða endurmenntun. Ef þú smellir á tengilinn hér að neðan þá getur þú bæði séð áhugaverðar heimasíður og tengingu á áhugaverða viðburði sem HumanAtWork mælir með að skoða nánar.

Smelltu hér til að skoða nánar