fáðu faglega ráðgjöf Þegar samskipti, líðan eða starfsmannamál verða flókin

Handleiðsla og sálfræðiþjónusta

Hjá HumanAtWork bjóðum við upp á handleiðslu og sálfræðiþjónustu fyrir mannauðsstjóra, stjórnendur og starfsfólk.

Við krefjandi aðstæður er mikilvægt og oft nauðsynlegt að fá utanaðkomandi aðstoð, einhvern til að ræða málin við í trúnaði, kanna valkosti og ákveða næstu skref.

Við vitum að ábyrgðin getur verið mikil, ákvarðanir flóknar og tíminn oft af skornum skammti. Þess vegna skiptir máli að hafa aðgang að einhverjum sem veitir hlutlaust rými til að ræða áskoranir, fá ráðgjöf, speglun eða einfaldlega losa um álag.

Hvernig er unnið með vellíðan og starfsánægju hjá ykkur í dag? 

Væri gagnlegt fyrir ykkur að hafa aðgang að sérfræðing sem veitir hlutlausa ráðgjöf og speglun í trúnaði?

Hvernig myndi það hafa áhrif á ykkar árangur ef starfsfólk fengi faglega aðstoð við að takast á við álag og samskiptaerfiðleika? 


HumanAtWork veitir stjórnendum og starfsfólki faglega handleiðslu og sálfræðiþjónustu, hvort sem um er að ræða áskoranir í samskiptum, álag, breytingar eða flókin starfsmannamál. Þjónustan er í trúnaði og veitir rými til að spegla, fá ráðgjöf og finna næstu skref. Þetta getur skipt sköpum þegar ábyrgðin er mikil og tíminn naumur. 

Fyrir stjórnendur og mannauðsfólk

  • Sjálfsvitund og leiðtogastíll (styrkleikar, blindir blettir, gildi, þróa leiðtogastíl)
  • Samskipti og áhrif (efla samskiptahæfni, endurgjöf, krefjandi samtöl, virkja aðra, sýna samkennd)
  • Ákvarðanataka og ábyrgð (traust, flókin mál, álitamál, óvissa)
  • Teymisvinna og menning (að byggja upp teymi, skapa traust, sálfélagslegt öryggi)
  • Breytingar og óvissa (leiða breytingar, stuðningur í breytingum, mótstaða)
  • Stefna og markmið (aðgerðir, forgangsröðun, fókus)
  • Vellíðan í starfi (setja mörk, ræða álag og leiðir til að draga úr álagi, jafnvægi vinnu og einkalífs)
  • Samskipti við hagaðila (leiða upp á við, greina lykilfólk og hagsmunaaðila, takast á við gagnrýni eða mótstöðu)
  • Starfsþróun (markmið, næstu skref, þjálfun)
  • Starfsmannamál (ræða flókin og viðkvæm mál í trúnaði, undirbúa erfið samtöl, spegla erfiðar ákvarðanir, ræða og ákveða næstu skref)
  • Krefjandi aðstæður (fá innsýn og verkfæri)
  • Viðra hugmyndir og fá endurgjöf

Fyrir starfsfólk

  • Rými til að ræða álag, samskiptaerfiðleika eða starfsóöryggi
  • Markviss aðstoð við að endurheimta fókus og vellíðan í starfi
  • Leiðsögn og valdefling í gegnum breytingar og vanda

Við nálgumst hvert samtal af fagmennskutrúnaði og virðingu og byggjum á áratugareynslu úr vinnusálfræði og mannauðsmálum

Við erum hér til að styðja þig

Bókunarsíða HumanAtWork ehf.