
gervigreind og stjórnun
Byggir á rannsóknum í vinnusálfræði og Gallup
Fyrir stjórnendur
Markmið að skilja hvernig stjórnendur geta nýtt gervigreindina sem hluta af daglegum störfum
örerindið er 30 mín
GERVIGREIND Í DAGLEGUM STÖRFUM
Örerindi um notkun gervigreindar í daglegum störfum og hlutverk stjórnenda
Er starfsfólkið þitt byrjað að nota gervigreind í daglegum störfum? Hefur vinnustaðurinn sett sér reglur varðandi notkun hennar? Hvernig geta stjórnendur nýtt gervigreindina betur? Farið er yfir nýjustu rannsóknir á gervigreind og hvaða áhrif notkun hennar hefur á daglega stjórnun.
Hvað gerum við? HumanAtWork býður uppá örerindi fyrir stjórnendur um gervigreind í daglegum störfum og áhrifn hennar á stjórnun.
Örerindið byggir á rannsóknum í vinnusálfræði, job crafting aðgerðafræðinni og niðurstöðum úr rannsóknum Gallup.
Á örerindinu er m.a. farið yfir hlutverk stjórnenda og hvernig það hefur breyst með tilkomu gervigreindar og hvernig stjórnendur geta nýtt gervigreindina betur í sínum daglegu störfum.
Kennari: Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur

