fáðu faglega ráðgjöf Þegar samskipti, líðan eða starfsmannamál verða flókin

fyrir mannauðsfólk, stjórnendur og starfsfólk

Áhrifarík og hagnýt fræðsla fyrir starfsfólk, stjórnendur og mannauðsfólk. Við byggjum námsefnið ávallt á nýjustu rannsóknum í vinnusálfræði og reynslu úr íslensku atvinnulífi.

Við sérsníðum efnið að þörfum hópsins og vinnum með ykkar áskoranir.

Lengd: 30–180 mínútur
Tungumál: Íslenska eða enska
Staðsetning: Á vinnustað, fjarfundur eða í samvinnu við ráðstefnur og viðburði

Hér fyrir neðan má sjá dæmi um námskeið, fyrirlestra og örerindi sem hægt er að bóka, ef þú finnur ekki það sem þú leitar að, endilega hafðu samband og við hjálpum þér að finna réttan aðila í verkefnið.


Styrkleikafræðsla

Fyrir einstaklinga og teymi til að greina og virkja styrkleika sína með Clifton Strengths (Gallup Strengths). Viltu auka sjálfsþekkingu, styrkja tengsl og skapa jákvæðari vinnumenningu? Hvort sem þú vilt efla þig sem einstakling, byggja traust í nýju teymi eða auka sjálfstraust starfsfólks – þá er styrkleikaþjálfunin öflug leið til að fá fólk til að vinna betur saman. Byggir á Gallup Strengths Finder / Clifton Strengths Finder, Lencioni og rannsóknum úr vinnusálfræði.


starfsmannamál

Flókin og krefjandi starfsmannamál. Hefur þú þurft að taka á erfiðu starfsmannamáli? Hafa komið upp samskiptaerfiðleikar í teyminu hjá þér sem þú ert óviss um hvernig er best að leysa, eða hvort þú þurfir yfirhöfuð að gera eitthvað í því? Viltu vera klár í málið þegar það mun koma upp? Námskeiðið byggir á lögum um hollustuhætti á vinnustöðum, reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, Faktaundersökelse aðferðafræðinni ásamt rannsóknum í vinnusálfræði.

Samskipti


Hvað skiptir máli í samskiptum og hverjir eru helstu áhættuþættirnir í vinnuumhverfinu? Fyrirlesturinn byggir á rannsóknum í vinnusálfræði.

Endurgjöf

Ekki bíða þar til allt er komið í hnút, þegar hlutirnir ganga ekki upp – það er samtalið sem skiptir máli. Námskeið til að efla stjórnendur að ræða frammistöðu og axla ábyrgð þegar væntingar eru ekki uppfylltar. Námskeiðið byggir á rannsóknum innan vinnusálfræði.

Fjarvinna

Fjarvinna og sveigjanleiki. Er boðið upp á fjarvinnu á þínum vinnustað – einn dag í viku eða oftar? Hafa stjórnendur og starfsfólk fengið markvissa fræðslu um hvað þarf að hafa í huga, hvaða áhrif fjarvinna getur haft á einstaklinga, teymið og vinnustaðinn og hvaða lausnir eru í boði til að allt starfsfólk blómstri? Námskeiðið byggir á JD-R kenningunni (Job Demands–Resources), Job Crafting aðferðafræði ásamt rannsóknum í vinnusálfræði.




Bókunarsíða HumanAtWork ehf.