fáðu faglega ráðgjöf Þegar samskipti, líðan eða starfsmannamál verða flókin

heildstæð nálgun humanatwork

Vinnustaðir standa í dag frammi fyrir flóknum áskorunum sem tengjast samskiptum, streitu, teymisvinnu og meðferð viðkvæmra starfsmannamála. Til að takast á við slíkar áskoranir þarf oft meira en staka fræðslu eða ráðgjöf. Það þarf heildstæða nálgun.

HumanAtWork býður upp á heildstæða nálgun fyrir vinnustaði þar sem fræðsla, ráðgjöf og markviss þróunarvinna eru samþætt. Lausnirnar byggja á gagnreyndri þekkingu úr vinnusálfræði og áratuga reynslu af vinnu með stjórnendum, mannauðsfólki og teymum.

Markmiðið er að styðja stjórnendur í að:

  • byggja upp heilbrigða vinnustaðamenningu
  • styrkja samskipti og samvinnu
  • draga úr streitu og óheilbrigðu álagi
  • tryggja faglega meðferð viðkvæmra starfsmannamála

Heildstæð nálgun HumanAtWork er þróuð til að styðja stjórnendur, teymi og starfsfólk og geta verið bæði fyrirbyggjandi og lausnamiðaðar þegar áskoranir koma upp.

EKKO mál (einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi) geta haft veruleg áhrif á starfsfólk, vinnustaðamenningu og starfsemi fyrirtækja. Mikilvægt er að vinnustaðir hafi skýra stefnu, skilgreint verklag og þekkingu á því hvernig bregðast á við slíkum málum.

HumanAtWork býður upp á heildstæða ráðgjöf við uppbyggingu og þróun þessa málaflokks á vinnustöðum.

Nálgunin getur meðal annars falið í sér:

  • hönnun og eftirfylgni EKKO könnunar meðal starfsfólks
  • gerð eða endurskoðun stefnu og verklags
  • þróun fyrirbyggjandi aðgerða
  • gerð viðbragðsáætlunar
  • fræðslu fyrir stjórnendur um ábyrgð og hlutverk þeirra
  • þjálfun viðbragðsaðila
  • fræðslu fyrir starfsfólk

Markmiðið er að vinnustaðir hafi uppfylli þær skyldur sem gerðar eru til þeirra í lögum ásamt því að hafa skýra og faglega umgjörð um meðferð mála og aukna þekkingu innan vinnustaðarins.

Árangursrík teymi byggja á trausti, góðum samskiptum og skýrum skilningi á styrkleikum einstaklinga.

Í þessari heildarlausn er unnið með teymi út frá styrkleikamatinu CliftonStrengths frá Gallup til að hjálpa fólki að skilja betur hvernig það vinnur, hugsar og leggur sitt af mörkum til samstarfs.

Nálgunin getur meðal annars falið í sér:

  • styrkleikamat fyrir teymið
  • einstaklingssamtöl um niðurstöður
  • teymisvinnustofur þar sem teymið vinnur með styrkleika sína
  • vinnu með samskipti og samvinnu innan teymisins

Markmiðið er að efla traust, bæta samskipti og auka helgun í starfi með því að byggja á styrkleikum fólks.

Álag og streita í starfi eru meðal stærstu áskorana vinnustaða í dag. Rannsóknir sýna að jafnvægi milli krafna í starfi (demands) og bjarga (resources) hefur afgerandi áhrif á vellíðan, frammistöðu og helgun í starfi.

Þessi heildarlausn byggir á Job Demands–Resources líkaninu (JD-R) og rannsóknum á Workdesign.

Unnið er með vinnustaði, stjórnendur, teymi og einstaklinga

Lausnin getur meðal annars falið í sér:

  • stuðning við einstaklinga sem snúa aftur til starfa eftir veikindaleyfi vegna kulnunar
  • greiningu á þáttum sem skapa álag í starfi
  • greiningu á björgum (resources) sem styðja starfsfólk
  • fræðslu fyrir stjórnendur um mikilvægi jafnvægi milli krafna og bjarga
  • vinnu með teymum um skipulag vinnu og ábyrgð

Markmiðið er að hjálpa vinnustöðum að skapa vinnuumhverfi sem styður árangur, vellíðan og helgun í starfi.


Okkur finnst mikilvægt að mannauðsfólk og stjórnendur viðhaldi þekkingu sinni og fái góða endurmenntun. Ef þú smellir á tengilinn hér að neðan þá getur þú bæði séð áhugaverðar heimasíður og tengingu á áhugaverða viðburði sem HumanAtWork mælir með að skoða nánar.

Smelltu hér til að skoða nánar