
Fjarvinna og sveigjanleiki
Byggir á vinnu- og umhverfissálfræði
Fyrir stjórnendur, teymi og starfsfólk
Markmið að búa til skýran ramma utan um fjarvinnu, auka vellíðan og ná meiri árangri
Námskeiðið er 3 klst.
FJARVINNA SEM VIRKAR
Námskeið um fjarvinnu og / eða sveigjanlegt vinnufyrirkomulag
Er boðið upp á fjarvinnu á þínum vinnustað – einn dag í viku eða oftar? Hafa stjórnendur og starfsfólk fengið markvissa fræðslu um hvað þarf að hafa í huga, hvaða áhrif fjarvinna getur haft á einstaklinga, teymið og vinnustaðinn og hvaða lausnir eru í boði til að allt starfsfólk blómstri?
Hvað gerum við? HumanAtWork býður sérsniðna fræðslu fyrir stjórnendur og/eða starfsfólk um fjarvinnu og sveigjanlegt vinnufyrirkomulag.
Námskeiðið byggir á JD-R kenningunni (Job Demands–Resources) og Job Crafting aðferðafræði
Á námskeiðinu er m.a. farið yfir kosti og galla fjarvinnu, algenga áhættuþætti, leiðir til að draga úr neikvæðum áhrifum og auka jákvæð áhrif, hvað vinnustaðurinn getur gert, hlutverk starfsfólks/stjórnenda, hæfni starfsfólks/stjórnenda, umgjörð og umræða um fjarvinnu/sveigjanleika, hvað starfsfólk/stjórnendur geta gert til að bæta einbeitingu, samskipti og afköst.
Kennari: Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur

