
ENDURGJÖF OG HRÓS
Byggir á vinnusálfræði
Fyrir stjórnendur
Markmið að skilja mismunandi leiðir við endurgjöf og hrós, hvað skilar árangri og hvers vegna skiptir þetta máli
Námskeiðið er 90 mín.
TÖLUM OFTAR SAMAN
Námskeið fyrir stjórnendur um endurgjöf og hrós
Eru stjórnendur alltaf að hrósa og veita endurgjöf, en samt kemur spurningin alltaf lágt út í starfsmannakönnunum? Langar ykkur til þess að bæta endurgjöfina og tryggja að bæði hún og hrósin skili sér alla leið. Er kominn tími á að veita einhverjum leiðréttandi endurgjöf? Þurfa stjórnendur kannski upprifjun eða þjálfun í því hvernig best er að veita endurgjöf. Farið er yfir allt sem á undan er talið ásamt fleiru á þessu námskeiði.
Hvað gerum við? HumanAtWork býður sérsniðið námskeið fyrir stjórnendur sem vilja bæta endurgjöf og hrós og til að efla stjórnendur að ræða frammistöðu og axla ábyrgð þegar væntingar eru ekki uppfylltar.
Námskeiðið byggir á rannsóknum Gallup og í vinnusálfræði.
Á námskeiðinu er m.a. farið yfir mismunandi leiðir við endurgjöf og hrós, hvaða aðferðir skila árangri og hvers vegna þetta skiptir máli.
Kennari: Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur

